top of page

Nevena þrefaldur Íslandsmeistari



Íslandsmeistaramótið í borðtennis fró fram í TBR húsinu um helgina. Mótið var hið glæsilegasta og mikið um fallegan borðtennis. Óhætt er að segja að sigurvegari mótsins hafi verið Nevena Tasic sem varð þrefaldur Íslandsmeistari á sínu fyrsta Íslandsmeistaramóti.


Nevena sigarði í einliðaleik kvenna auk þess sem hún varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik ásamt Agnesi Brynjarsdóttur og þá varð hún líka Íslandsmeistari í tvenndarleik með Inga Darvis Rodriguez.






Auk þess að næla í þessa Íslandsmeistaratitla þá lék Ingi Darvis til úrslita í einliðaleik karla og einnig lék hann til úrslita í tvíliðaleik ásamt Magnúsi Jóhanni Hjartarsyni.


bottom of page